Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. desember 2017 var lögð fram fyrirspurn Ragnars Helga Róbertssonar mótt. 5. desember 2017 um að fjarlægja svalir og kolageymslu sem snúa í norður og stækka húsið á lóð nr. 31 við Eiríksgötu, setja svalir á vesturhlið, fjölga íbúðum í húsinu og starfrækja gististað í flokki II. Einnig eru lagðar fram teikningar Thelmu Guðmundsdóttur dags. 20. nóvember 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2018..