Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN036505 þannig að húsi er skipt í tvær íbúðir, gluggasetningu breytt og hurðum bætt við á austur- og vesturhlið og bílastæði, stoðvegg og tröppum bætt við á vesturhluta lóðar nr. 6 við Iðunnarbrunn. Stækkun; 3,8 ferm., Samtals A-rými: 402,5 ferm., 1.225,3 rúmm. B-rými: 17,1 ferm. Gjald kr. 11.200