Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. nóvember 2017 var lögð fram fyrirspurn Ingu Sólveigar Friðjónsdóttur mótt. 1. nóvember 2017 um að endurbyggja tvær samliggjandi geymslur á lóð nr. 35 við Hverfigötu sem eitt rými (0103), stækka bygginguna til suðurs og hækka um eina hæð og koma fyrir sorpskýli og hliði fyrir framan port, samkvæmt uppdr. dags. í september 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. desember 2017.