Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Narfa Þorsteinssonar, dags. 23. ágúst 2022, um að skipta íbúð merkt 201 í húsinu á lóð nr. 35 við Hverfisgötu í tvær íbúðir. Einnig er lögð fram teikning ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2022.