Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar mótt. 2. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 41 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall lóðarinnar er hækkað, fjölga íbúðum í húsinu í þrjár, ein á hverri hæð (utan kjallara) og ein í risi, og koma fyrir svölum á norðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. ódags. Einnig er lagt fram samkomulag Reykjavíkurborgar og Sjens vegna byggingarréttar við Hverfisgötu 41 dags. 31. október 2016.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.