Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2014 var lögð fram fyrirspurn Arnar Þórs Halldórssonar dags. 22. janúar 2014 varðandi byggingu 4-5 hæða gistiheimili/hostel á lóðinni nr. 41 við Hverfisgötu með móttöku á jarðhæð ásamt kaffi-/veitingahúsi. Einnig er óskað eftir endurskoðun á bílastæðaþörf. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.