Lögð fram fyrirspurn
Noland Arkitekta ehf.
dags. 4. apríl 2019 um breytingu á deiliskipulagi fyrir Hverfisgötu 41 sem felst í aukningu á nýtingarhlutfalli og stækkun á byggingarreit lóðarinnar. Um er að ræða stækkun á reitnum norðanmegin samsíða svölum um 1,6 metra svo hægt sé að koma fyrir stigahúsi. Einnig er óskað eftir að koma fyrir þriðja kvistinum Hverfisgötumegin og breyta texta í gildandi deiliskipulagi sem kveður um að aðalinngangur verði að vera Hverfisgötumegin, samkvæmt tillögu
Noland Arkitekta ehf.
ódags. Einnig eru lagðir fram minnispunktar frá fundi Minjastofnunar Íslands dags. 18. mars 2019.