Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílskúr og innrétta gróðurskála og vinnuherbergi í stækkuðum bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 24 við Kambsveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2018. Stækkun: 40 ferm., 110,6 rúmm. Gjald kr. 11.000