Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílskúr og innrétta íbúð við einbýlishús á lóð nr. 24 við Kambsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2018.
Stækkun: 40 ferm., 110,6 rúmm. Gjald kr. 11.000