Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. apríl 2018 var lögð fram fyrispurn Arnalds Geirs Schram dags. 2. apríl 2018 varðandi stækkun hússins á lóð nr. 67 við Njálsgötu, samkvæmt uppdr. A. Schram arkitektur dags. 30. mars 2018. Einnig er lagt fram fyrirspurnarhefti dags. 2. apríl 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.