Lögð fram umsókn Mansard teiknistofu, mótt. 26. maí 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals hverfi 04 vegna lóðar nr. 31 við Freyjubrunn. Í breytingunni felst fjölgun íbúða úr 5 í 7, samkvæmt uppdrætti, dags. 15. maí 2016. Einnig lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 18. maí 2016.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.