Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2016 var lögð fram fyrirspurn Ólafar Hildar Pind Aldísardóttur og Sigfúsar Bjartmarssonar, mótt. 17. febrúar 2016, um að skipta húsinu á lóð nr. 2 við Góugötu í tvær íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. mars 2016.