Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. október 2021 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Jónssonar dags. 1. október 2021 ásamt bréfi dags. 23. september 2021 um stækkun hússins á lóð nr. 94 við Gvendargeisla sem felst í því að tvö rými skráð sem skriðrými í kjallara verði hluti af húsinu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 4. nóvember 2021.