Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. september 2017 var lögð fram fyrirspurn Önnu Fjeldsted f.h. Gilhaga ehf., mótt. 24. júlí 2017, um að breyta geymsluskúr á lóð nr. 1 við Veghúsastíg í íbúð, samkvæmt teikningu Thelmu Bjarkar Friðriksdóttur, dags. júlí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. október 2017.