Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. september 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. september 2014 þar sem spurt er hvort fella megi burt hurð og setja glugga í staðinn á útihúsið Túngötu 5c og hvort byggja megi þak yfir bílastæði og koma þar fyrir útivistarsvæði við húsið á lóðinni nr. 5 við Túngötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. október 2014.