Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. maí 2014 var lögð fram umsókn Arnar Leós Stefánssonar dags. 28. apríl 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis 4 og 5 áfanga vegna lóðarinnar nr. 166 við Fannafold. Í breytingunni felst að breyta einbýlishúsi í parhús. Umsókninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.