Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð og ris, og svalir og útistiga á bakhlið einbýlishúss á lóð nr. 6B við Brekkustíg. Erindi var grenndarkynnt frá 30. apríl 2019 til og með 28. maí 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigrún L. Baldvinsdóttir dags. 18. maí 2019 og Aðalsteinn Smárason, Anna Soffía Gunnarsdóttir, Guðný Margrét Emilsdóttir, Heiðrún Kristjánsdóttir og Ólafur Kvaran dags. 27. maí 2019. Stækkun: 137,8 ferm., xx rúmm. Stærð eftir stækkun, A-rými: 245,2 ferm., 658,3 rúmm. Gjald: kr. 11.200