Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lögð fram fyrirspurn Davíðs Þórs Björnssonar, mótt. 6. desember 2016, um að sameina kvisti á þaki húsanna nr. 4 og 6 við Skálagerði, samkvæmt tillögu, ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2017.
Svar
Ekki er gerð athugasemd við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.