Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25 ágúst 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr á tveimur hæðum, bílgeymsla á aðkomuhæð og geymsla í kjallara við hús á lóð nr. 222 við Sogaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.