Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lögð fram fyrirspurn Direkta lögfræðiþjónustu ehf., mótt. 29. ágúst 2016, varðandi fjölgun íbúða í húsinu nr. 24B á lóð nr. 20-28 við Ólafsgeisla. Einnig er lagt fram bréf Ástu Guðrúnar Beck frá Direktu lögfræðiþjónustu f.h. eigenda, dags. 25. ágúst 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. september 2016.