Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús með 30 íbúðum á bílakjallara sem er sameiginlegur með húsi nr. 11, á lóð nr. 9 við Súðarvog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stærð: 4.265,8 ferm., 13.826,3 rúmm. Gjald kr. 11.200