Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 18. febrúar 2011 var lögð fram fyrirspurn Ragnheiðar Hauksdóttur dags. 14. febrúar 2011 um að endurnýja handrið á þaki bílskúrsins á lóð nr. 17 við Bugðulæk. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 25. febrúar 2011.