Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2013 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist á suðvestur rishæð með frönskum svölum á fjölbýlishúsið á lóð nr. 4 b við Týsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. nóvember 2013.