Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Þórunnar Pálsdóttur dags. 27. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 4B við Týsgötu. Í breytingunni felst að setja kvist á suðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. dags. 3. júní 2014. Tillaga var grenndarkynnt frá 21. nóvember til og með 19. desember 2014. Engar athugasemdir bárust.