Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 30. janúar 2012 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. janúar 2012 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að færa gluggana út og breyta gluggum hússins á lóð nr. 44 við Klapparstíg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. febrúar 2012.