Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. október 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á grunni eldra húss sem verður rifið og er nr. 23 á lóð nr. 17-23 við Láland. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29.október 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2015. Stærð A-rými 347,4 ferm., 1.245,4 rúmm. B-rými: 57,7 ferm., 194,3 rúmm. Samtals: 405,1 ferm., 1.439,7 rúmm. Gjald kr. 9.823