Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi bílskúr og byggja nýjan í staðinn, innar á lóðinni og fjær lóðarmörkum við einbýlishús á lóð nr. 23 við Bræðraborgarstíg. Erindi var grenndarkynnt frá 24. júní til og með 22. júlí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Irma Erlingsdóttir og Geir Svansson, dags. 30. júní 2016 og 20. júlí 2016. Stærðir: Nýbygging og eldri-, ferm. og rúmm. sbr. skráningartafla, xxx Gjald kr. 10.100