Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. janúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka ris þannig að hægt verði að nota það til íveru í einbýlishúsi á lóð nr. 10 við Bræðraborgarstíg. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 13. janúar 2014. Sjá erindi BN044237 sem samþykkt var 3. júlí 2012. Stækkun: 43,1 ferm., 71,2 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ránargötu 45, Drafnarstíg 3, 5, Bræðraborgarstíg 8, 9 og 12.