Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Arkís arkitekta ehf.
, mótt. 9. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 27 við Klettagarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur neðanjarðar er stækkaður og verður byggingarreitur bílgeymslu, gert er ráð fyrir að komið verði fyrir opnu bílastæðahúsi á lóð, bílastæðahús verður opið tveggja hæða auk þess sem gert er ráð fyrir bílastæðum á þaki bílastæðahúss og kjallari verður undir hluta húss, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 2. janúar 2017. Einnig er lagt fram bréf
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 8. mars 2017. Tillagan var auglýst frá 13. júní 2017 til og með 25. júlí 2017. Engar athugasemdir bárust.