Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta skráningu á 2. hæð þannig að í stað íbúðar/vinnustofu með einu rýmisnúmeri verði tvær sjálfstæðar íbúðir í húsi á lóð nr. 16 við Tryggvagötu. Erindi fylgir afrit af samþykktum teikningum og samþykki meðeigenda dagsett 18. nóvember 2020. Gjald kr. 11.200