Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 23. nóvember 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. nóvember 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að síkka glugga á fjórðu og fimmtu hæð, byggja svalir á suðurhlið og innrétta tvær íbúðir, eina á fjórðu hæð og hina á fimmtu hæð íbúða- og atvinnuhússins á lóðinni nr. 16 við Tryggvagötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 3.desember 2012.