Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 1. mars 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að breyta þaki, setja kvisti með skúrþaki á báðar hliðar, svalir á suðurhlið og innrétta íbúðir á 4. og 5. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 16 við Tryggvagötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. mars 2013.
Erindi fylgir þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 15. september 2005 og samkomulag eigenda Tryggvagötu 16 (ekki þinglýst), dags. 7. desember 2004 og fsp. dags. 20. nóvember 2012. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.000 + xx