Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að lækka jarðveg á suðurhlið lóðar og gera íbúð í kjallaranum með hurð út á verönd, koma fyrir tröppum frá svölum niður í garð og að koma fyrir járnbita í staðinn fyrir súlu í íbúðar 0201 og breyta sérafnotaflötum á lóð, auk þess sem sótt er um áður gerðar breytingar á innra skipulagi íbúða 0201 og 0301, í húsi á lóð nr. 21 við Njörvasund.