Lögð fram fyrirspurn Úlfars Gunnarssonar dags. 17. maí 2011 varðandi breytta notkun á húsnæðinu nr. 2 við Laufásveg.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst, en athygli fyrirspyrjenda er vakin á því að samþykki meðlóðarhafa þarf að fylgja.