Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN057779 þannig að brunavarnir á vesturhlið eru uppfærðar, formi og stærð suðursvala er breytt og nýjar svalir gerðar yfir inngöngum íbúða til norðurs á parhúsi á lóð nr. 6-8 við Úlfarsbraut. Stækkun: x.xx ferm. Erindi fylgir ódagsett samþykki eigenda húss nr. 10 og nr. 4 við Úlfarsbraut og yfirlit breytinga á uppdráttum stimpluðum 21. júlí 2021. Gjald kr. 12.100