breyting á deiliskipulagi
Friggjarbrunnur 14-16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 539
22. maí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Dalhúss ehf. dags. 23. mars 2015 um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals svæði 4 vegna lóðar nr. 14-16 við Friggjarbrunn. Í breytingunni felst m.a. að fjölga íbúðum um eina og bílastæðum um eitt á lóð, samkvæmt uppdrætti Ask arkitekta dags. 23. mars 2015. Einnig lögð fram greinargerð hönnuða dags. 23. mars 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. apríl til og með 15. maí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.