Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús, hæð og kjallara með bílskýli undir hluta húss, úr forsteyptum einingum á lóð nr. 22 við Bauganes. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. febrúar 2014.
Stærð: Kjallari 127,7 ferm., 1. hæð 215,6 ferm. Samtals 343,3 ferm., 960,9 rúmm. B-rými: bílskýli 45,5 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.500