Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. nóvember 2019 var lögð fram fyrirspurn Sveins Ólafs Arnórssonar dags. 3. nóvember 2019 um að breyta bílskúr á lóð nr. 69 við Laugarnesveg í íbúð, samkvæmt grunnmynd ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019.