Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Gunnlaugs Jónassonar, mótt. 14. september 2017, um að viðbygging við húsið Langholtsveg 49 verði byggð út fyrir byggingarreit, skv. uppdráttum, dags. 7. september 2017. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 7. september 2017. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2017.