Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. nóvember 2017 var lögð fram umsókn Gunnlaugs Jónassonar f.h. Írisar Georgsdóttur mótt. 30. október 2017 ásamt greinargerð dags. 20. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 49 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir viðbyggingu stækkar og færist til suðurs að lóðarmörkum Langholtsvegar 51 og að þakskegg nái allt að 0,5 metra út fyrir byggingarreit til austurs og vesturs. Flatt þak er leyft á viðbygginguna, samkvæmt uppdr. Teikning.is dags. 23. október 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.