Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. september 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð úr timbri og klæða að utan með bárujárni einbýlishús á lóð nr. 25 við Njarðargötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. mars 2013. Stækkun: 34,8 ferm., 242,3 rúmm. Gjald kr. 9.000 + 21.807