Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, mótt. 16. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 3 við Korngarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður að hluta á suðvestur horni reitsins til suðurs og hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr.
DAP ehf.
, dags. 15. mars 2017. Einnig er lögð fram greinargerð
DAP ehf.
, dags. 15. febrúar 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. maí 2017 til og með 30. maí 2017. Engar athugasemdir bárust.