Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn
DAP ehf.
, mótt. 15. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 3 við Korngarða. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit, samkvæmt tillögu
DAP ehf.
, dags. 25. janúar 2017. Einnig er lögð fram greinargerð
DAP ehf.
, dags. 15. febrúar 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. mars 2017.