Breytingar - 1. og 4.hæð veitingarstaður í fl. III tegund G
Korngarðar 3
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 601
16. september, 2016
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Guðmundar O. Víðissonar, mótt. 7. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka- Klettasvæði vegna lóðanna nr. 3 og 13 við Korngarða. Í breytingunni felst að hámarks nýtingarhlutfall á lóð nr. 3 við Korngarða fyrir millipalla verður 0,34 og bílastæðakrafa fyrir millipalla verður 1 bílastæði per 300 m2 fyrir lager og vörugeymslu. Jafnframt er komið fyrir byggingarreit á lóð nr. 13 við Korngarða þar sem hámarkshæð byggingar verður 18,0 m., samkvæmt uppdr. Dap arkitekta, dags. 7. september 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Dap arkitekta ehf., dags. 7. september 2016 og bréf Faxaflóahafna, ódags.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

104 Reykjavík
Landnúmer: 223775 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116000