Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Jóns Þórs Þorvaldssonar dags. 28. febrúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi neðan Sléttuvegar vegna lóðanna nr. 2-16 við Lautarveg. Í breytingunni felst fjölgun íbúða, samkvæmt uppdr. úti og inni dags. 18. febrúar 2014. Tillagan var auglýst frá 9. apríl til og með 21. maí 2014. Engar athugasemdir bárust.