Á fundi skipulagsfulltrúa 14. júní 2013 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna dags. 7. júní 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 11-13 og 47 við Fiskislóð . Í breytingunni felst m.a. hækkun á nýtingarhlutfalli og skilgreining kvaðar um staðsetningu spennistöðvar á lóðinni Fiskislóð 47, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 26.6.2013. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.