Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Faxaflóahafna dags. 7. júní 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 11-13 og 47 við Fiskislóð . Í breytingunni felst m.a. hækkun á nýtingarhlutfalli og skilgreining kvaðar um staðsetningu spennistöðvar á lóðinni Fiskislóð 47, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 26.6.2013. Tillagan var auglýst frá 19. júlí til og með 30. ágúst 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Geymsla eitt ehf, Jón D. Ólafsson dags. 26. ágúst 2013, Exton ehf, Sverrir Hreiðarsson dags. 27. ágúst 2013 og HF fasteignir ehf. og Hólshús ehf. dags. 30. ágúst 2013.