Lögð fram umsókn Guðjóns Þóris Sigfússonar dags. 6. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfirisey) vegna lóðarinnar nr. 11-13 við Fiskislóð. Í breytingunni felst skipting lóðarinnar í tvær lóðir, samkvæmt uppdr. VGS verkfræðistofu dags. 10. mars 2020. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna ohf. dags. 29. júní 2016 til Lýsi hf.