Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju lýsing vegna deiliskipulags Vesturbugtar dags. 1. október 2012. Skipulag Vesturbugtar afmarkast af Ánanaustum í vestri og að Slippnum í austri. Einnig eru kynnt drög að deiliskipulagi svæðisins samkvæmt upprætti
ALARK arkitekta ehf.
dags. 6. maí 2013. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt til og með 30. maí 2013. Eftirtaldir aðilar sendu ábendingar og athugasemdir: Sigurður Bjarnason og Ragnheiður Guðjónsdóttir dags. 20. maí 2013, Birgir Þ. Jóhannesson, dags. 27. maí 2013, Slippurinn fasteignafélag dags. 29. maí 2013, Seltjarnarnesbær dags. 30. maí 2013 og Olíudreifing, Gestur Guðjónsson dags. 30. maí 2013, Nótt Thorberg, dags. 30. maí 2013, Samskip Ingi Þór Hermannsson, dags. 30. maí 2013, Sigurjón H. Ingólfsson, dags. 30. maí 2013, Sæmundur Benediktsson og Margrét Jónsdóttir dags. 30. maí 2013, Skúli Magnússon dags. 1. júní 2013 og Vegagerðin dags. 3. júní 2013.