Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. nóvember 2017 var lögð fram umsókn Yrki arkitekta, mótt. 5. júlí 2017, um breytingu á deiliskipulagi Vesturbugtar svæði 5 og 6 skv. uppdráttum Yrki, dags. 14. nóvember 2017. Sótt er um breytingu á deiliskipulagi Vesturbugtar fyrir einnar hæðar verslunar- og þjónustuhúsum (einingar) fyrir Faxaflóahafnir á Ægisgarði og við Hafnargötu ásamt uppbyggingu stærra þjónustuhúss við Ægisgarð. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.